ALDEY barnapeysa er ofboðslega létt og fíngerð peysa prjónuð úr Andorra garninu frá Kelbourne Woolens. Einfalt en fallegt mynstur fylgir laskanum niður peysuna sem gefur henni skemmtilegan svip. Peysan er prjónuð frá hálsmáli svo auðvelt er að breyta lengd á ermum og bol til að peysan passi sem best á barnið.
Stærðir |
Ummál peysu ca |
Garn* |
1-2 ára |
58 cm |
150 |
2-4 ára |
66 cm |
150 |
4-6 ára |
70 cm |
200 |
6-8 ára |
76 cm |
200 |
8-10 ára |
80 cm |
250 |
10-12 ára |
86 cm |
300 |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Andorra frá Kelbourne Woolens.
Andorra frá Kelbourne Woolens (sýnt á mynd) eða Bio Balance frá BC Garn
10 cm = 24 lykkjur sléttprjón