YRJA barnapeysa er prjónuð í hring ofan frá hálsmáli. Útaukningar eru gerðar á berustykki sem mynda fallegan strúktúr á öxlum. Neðst á peysunni er falleg pífa með einföldu mynstri.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* |
9-12 mánaða |
57 cm |
150 g |
1-2 ára |
61 cm |
200 g |
2-4 ára |
67 cm |
250 g |
4-6 ára |
72 cm |
250 g |
6-8 ára |
77 cm |
300 g |
8-10 ára |
81 cm |
350 g |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Baby Alpaka frá Kremke.
Baby Alpaka frá Kremke Soul Wool (100 m/50 g), Scout frá Kelbourne Woolens (250 m/100 g), Bébé Soft Wash frá Kremke Soul Wool (140 m/50 g) eða Pura Lana frá Gepard Garn (115 m/50g).
21 lykkjur og 28 umferðir = 10x10 cm