YNDI samfella, eða romper eins og það er oft kallað, er dásamlega falleg flík fyrir ynstu börnin með fallegu mynstri að aftan fyrir litla bossa. Samfellan er prjónuð neðan frá, fyrst eru fram- og afturstykki prjónuð í sitthvoru lagi fram og til baka sem síðan eru sameinuð og prjónað í hring. Smekkurinn er svo prjónaður fram og til baka og lykkjur tekna upp fyrir axlaböndum.
Stærð |
Ummál |
Garn* |
0-3 mánaða |
38 cm |
100 gr |
3-6 mánaða |
42 cm |
100 gr |
6-9 mánaða |
46 cm |
100 gr |
9-12 mánaða |
49 cm |
100 gr |
12-18 mánaða |
53 cm |
100 gr |
18-24 mánaða |
56 cm |
100 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Scout frá Kelbourne Woolens eða Bébé Soft Wash frá Kremke
4,0 mm hringprjón
4,0 mm sokkaprjóna
3,5 mm sokkaprjóna
Prjónamerki
Tölur
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón