SPÓI sokkabuxur eru æðislegar fyrir minnstu börnin. Tilvalið við samfelluna eða undir kjólinn fyrir öll tilefni. Buxurnar eru prjónaðar ofan frá mitti með stuttum umferðum til þess að rýma fyrir litlum bleyjubossum. Útaukningar eru gerðar við klof þar sem lykkjum er síðan skipt í sitthvora skálm og klof. Brugðning er gerð áður en sokkarnir er gerðir svo fætur barnsins haldist vel í þeim.
Stærð |
Ummál buxna |
Garn* |
0-1 mánaða |
39 cm |
100 gr |
1-3 mánaða |
43 cm |
100 gr |
3-6 mánaða |
46 cm |
100 gr |
6-9 mánaða |
49 cm |
150 gr |
9-12 mánaða |
51 cm |
150 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Summer in Kashmir frá BC Garn, takið tillit til metrafjölda ef annað garn er notað.
Summer in Kashmir frá BC Garn (sýnt á mynd) (50g/165m), Bio Balance frá BC Garn (50g/225m) eða Sandnes Sunday (50g/235m).
10 cm = 28 lykkjur og 38 umferðir sléttprjón