SÓL fullorðinspeysa er opin garðaprjónspeysa prjónuð frá hálsmáli. Gert er ráð fyrir ágætri vídd í peysunni og er mælt með því að velja þá stærð sem gefur 10-15 cm aukinn slaka (e. Positive Ease) miðað við mælt brjóstmál. Fullkomin opin og óhneppt jakkapeysa.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* (Northern Lights/Lace þráður) |
XXS |
89 cm |
500 gr / 150 gr |
XS |
95 cm |
500 gr / 150 gr |
S |
103 cm |
600 gr / 200 gr |
M |
108 cm |
600 gr / 200 gr |
L |
116 cm |
700 gr / 200 gr |
XL |
124 cm |
700 gr / 250 gr |
XXL |
132 cm |
800 gr / 250 gr |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Northern Lights frá BC Garn og Alpaka Lace froa Kremke.
Northern Lights frá BC Garn (200 m/50 g) og Baby Alpaka Lace frá Kremke (400 m/50 g) eða Silky Kid Mohair frá Kremke (210 m/25g). Einn þráður af hvoru haldið saman.
10 cm = 15 lykkjur garðaprjón