ÓSK barnakjóll er hluti af ÓSK línunni frá MeMe Knitting. Kjóllinn er prjónaður ofan frá með gata laskaútaukningu og fallegu gatamynstri að framan. Kjóllinn hentar fyrir öll tilefni þar sem hann er bæði hlýr og sparilegur.
Stærðir |
Ummál |
Garn* |
3-6 mánaða |
52 cm |
200 grömm |
6-9 mánaða |
55 cm |
200 grömm |
9-12 mánaða |
57 cm |
250 grömm |
1-2 ára |
61 cm |
250 grömm |
2-4 ára |
63 cm |
300 grömm |
4-6 ára |
66 cm |
350 grömm |
6-8 ára |
72 cm |
350 grömm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Scout frá Kelbourne Woolens.
Scout frá Kelbourne Woolens, Morning Salutation frá Kremke eða Bébé Soft Wash frá Kremke – fæst í vefverslun MeMe Knitting
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón