Dásamlega mjúk og fallegt peysa fyrir yngstu börnin og er hluti af ÖGN ungbarnasetti. Peysan er prjónuð frá hálsmáli með laskaútaukning og notast er við stuttar umferðir við að móta hálsmálið. Einfaldleikinn er hafður að leiðarljósi í þessu setti - í einfaldleikanum býr fegurðin.
Stærðir |
Yfirvídd peysu |
Garn í peysu* |
0-1 mánaða |
45 cm |
100 grömm |
1-3 mánaða |
47 cm |
100 grömm |
3-6 mánaða |
51 cm |
100 grömm |
6-12 mánaða |
58 cm |
150 grömm |
1-2 ára |
62 cm |
150 grömm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við BC Garn Semilla
BC Garn Semilla – fæst í vefverslun MeMe Knitting
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón