MYRRA barnapeysa er einföld og falleg barnapeysa með litamynstri á berustykkinu. Peysan er prjónuð ofan frá og er því auðvelt að aðlaga sídd erma og bols eftir hverju barni. Hún er prjónuð úr Bébé Soft Wash frá Kremke, þétt og gott merinoullargarn sem þvo má í vél, tilvalin í leikskólann, skólann og útilegurnar.
Stærðir |
Ummál |
Aðallitur* |
Aukalitur* |
1-2 ára |
60 cm |
150 |
50 gr |
2-4 ára |
64 cm |
150 |
50 gr |
4-6 ára |
69 cm |
200 |
50 gr |
6-8 ára |
74 cm |
200 |
50 gr |
8-10 ára |
79 cm |
250 |
50 gr |
10-12 ára |
84 cm |
300 |
50 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf
Bébé Soft Wash frá Kremke Soul Wool – fæst á www.memeknitting.com
20 lykkjur = 10 cm sléttprjón