MISTUR barnapeysa er hluti af MISTUR línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð frá hálsmáli fyrst í tveimur stykkjum fram og til baka sem svo eru sameinuð í hring. Bolurinn er prjónaður og síðast ermar. Vegna þess að peysan er prjónuð ofan frá er auðvelt að lengja bol og ermar svo flíkin passi sem best á barnið.
Stærð |
Garn (aðallitur/aukalitur/mynstur)* |
Yfirvídd |
1-2 ára |
100 / 100 / 50 grömm |
60 cm |
2-4 ára |
100 / 100 / 50 grömm |
65 cm |
4-6 ára |
150 / 100 / 50 grömm |
71 cm |
6-8 ára |
150 / 150 / 50 grömm |
77 cm |
8-10 ára |
200 / 150 / 50 grömm |
81 cm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Semilla frá BC Garn. Á mynd er Aðallitur Chocolate, aukalitur Silver og mynsturlitur Brass.
BC Garn Semilla (sýnt á mynd), Bébé Soft Wash eða Scout
22 lykkjur = 10 cm
Mælt er með því að gera prjónfestuprufu til þess að tryggja að rétt prjónastærð er notuð.