FURA er kjóll prjónaðar neðan frá með gatamynstri neðst á kjól og ermum. Garðaprjón er í laskanum sem tengist fallega við mynstrið og hálsmálið. Kjólnum er hneppt í hálsmálinu að aftan svo auðvelt sé að klæða barnið í kjólinn.
Stærðir:
1-2 ára / 2- 4 ára, 4-6 ára / 6-8 ára, 8-10 ára
Garn:
Scout frá Kelbourne Woolens, Bébé Soft Wash frá Kremke eða Morning Salutation frá Kremke.
Hversu mikið garn þarf: 250 / 250, 300 / 350 400 grömm
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Það sem þarf:
4 mm hringprjónn (60 cm)
3,5 mm hringprjónn
4 mm sokkaprjónar
Tölur
Prjónamerki
Nál fyrir frágang
Prjónfesta: 10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4 mm prjóna.