DAGUR barnapeysa
Regular price 1.090 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%/
DAGUR barnapeysa er prjónuð frá hálsmáli með fallegu mynstri á berustykki. Auðvelt er að lengja eða stytta ermar og bol til þess að peysan passi sem best á barnið. Peysan er tilvalin á litla og stærri gorma fyrir kalda daga og hentar vel undir útifötin.
Stærðir | Yfirvídd | Garn | Aukalitur |
1-2 ára | 61 cm | 150 gr. | 50 gr. |
2-4 ára | 65 cm | 200 gr. | 50 gr. |
4-6 ára | 71 cm | 250 gr. | 50 gr. |
6-8 ára | 74 cm | 300 gr. | 50 gr. |
8-10 ára | 80 cm | 350 gr. | 50 gr. |
10-12 ára | 83 cm | 400 gr. | 50 gr. |
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Garn: Sandnes Merinoull (sýnt á mynd), Bébé Soft Wash eða Semilla
Það sem þarf:
- 3,5 mm hringprjón (40 og 60 cm)
- 4,0 mm hringprjón (40 og 60 cm)
- 3,5 mm sokkaprjóna
- 4,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
- Nál fyrir frágang
Prjónfesta: 10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4,0 mm prjóna