Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp. Mynstur er prjónað sitthvoru megin við hnappalista en slétt að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring.
Stærðir | Garn |
3-6 mánaða | 150 gr. |
6-12 mánaða | 150 gr. |
1-2 ára | 200 gr. |
2-4 ára | 250 gr. |
4-6 ára | 300 gr. |
6-8 ára | 350 gr. |
8-10 ára | 400 gr. |
Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Ég hef notað bæði Sandnes Smart og Dale Falk en hægt er að nota allt garn sem hentar prjónfestunni. Scout og Bébé Soft Wash hentar einnig í þessa uppskrift og fæst í vefverslun MeMe Knitting.
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 3,5 mm prjóna.