DÚNA fullorðinspeysa er dásamlega einföld og falleg hneppt peysa frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð frá hálsmáli með stuttum umferðum til þess að peysan sé hærri að aftan. Fyrir byrjendur sem treysta sér ekki í stuttar umferðir er auðvelt að sleppa þeim. Gert er ráð fyrir ólíkum garntegundum í þessa peysu sem gefur mjög ólíka útkomu, annarsvegar lauflétta peysu og hinsvegar þétta og hlýja peysu.
Stærð |
Ummál peysu |
Garn* |
XXS |
86 |
200 grömm |
XS |
93 |
200 grömm |
S |
98 |
200 grömm |
M |
108 |
200 grömm |
L |
113 |
250 grömm |
XL |
118 |
250 grömm |
XXL |
126 |
250 grömm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Babysilk Fluffy frá Kremke.
Babysilk Fluffy frá Kremke (50 g / 200 m) fyrir létta peysu eða Northern Lights (100 g / 200 m) fyrir þéttari og þyngri peysu. Athugið að tvöfalda þarf magnið af garni fyrir Northern Lights.
10 cm = 16 lykkjur sléttprjón