9 products
9 products
9 products
Heimferðarsett
Regular price 4.290 kr Save 0%Er lítið kríli á leiðinni? Fátt er jafn gaman fyrir þá sem prjóna og að fitja upp á flík handa litlu barni.
Það er gömul og góð hefð að nýfætt barn fái heimaprjónaðar flíkur. Það fer vel á því að klæða smábarn í hlý og mjúk ullarföt og eru heimferðarsett mjög vinsæl hjá nýbökuðum foreldrum. Hér eru uppskriftir að peysum, húfum, samfellum og öðru fallegu og fínlegu prjónlesi fyrir ungbörn. Uppskriftirnar eru fyrir börn frá fæðingu til sex mánaða aldurs.
Heimferðarsett er ný bók frá Prjónafjelaginu en það hefur áður sent frá sér vinsælar prjónabækur fyrir börn á leikskólaaldri; Leikskólaföt og Leikskólaföt 2.
Ljúflingar - Prjónað fyrir útivistina
Regular price 5.490 kr Sale price 4.890 kr Save 11%Í Ljúflingar – prjónað fyrir útivistina eru yfir 40 prjónauppskriftir að fallegum og sígildum flíkum á alla fjölskylduna. Hér eru uppskriftir að peysum, húfum, vettlingum, sokkum og öðru sem gott er að klæðast úti við, hvort sem leiðin liggur upp til fjalla, inn í skóg, á skíði, í siglingu eða niður á strönd og flíkurnar henta fyrir allar árstíðir.
Garnið í uppskriftunum er ýmist fínt eða gróft, og hér má velja milli einfaldra verkefna fyrir byrjendur og flóknari fyrir lengra komna.
Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland standa að KlompeLOMPE sem er bæði öflug netsíða og netverslun og þær hafa gefið út fjölmargar prjónabækur sem notið hafa mikilla vinsælda í Noregi og fleiri löndum. Á íslensku hefur áður komið út bók þeirra Ljúflingar – prjónað á smáa og stóra.
Höfundar: Torunn Steinsland, Hanne Andreassen Hjelmås, Ásdís Sigurgestsdóttir þýddi, Guðrún B. Þórsdóttir þýddi