3 products
ASKUR & EMBLA ungbarnasett
Regular price 1.990 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%Nafnið á settinu er vitnun í norræna goðafræði. Bræðurnir Óðinn, Vilji og Vé fundu á sjávarströndu tvo trédrumba. Óðinn gaf þeim líf og sál, Vilji gaf þeim málið og Vé gaf þeim vit og skynsemi. Gáfu þeir drumbunum nöfnin Askur og Embla og er af þeim allt mannkynið komið.
Stærðir | Garn í peysu | Garn í buxur |
0-3 mánaða | 150 gr. | 100 gr. |
3-6 mánaða | 150 gr. | 150 gr. |
6-9 mánaða | 150 gr. | 150 gr. |
9-12 mánaða | 200 gr. | 200 gr. |
12-18 mánaða | 200 gr. | 200 gr. |
18-24 mánaða | 250 gr. | 250 gr. |
2-3 ára | 250 gr. | 250 gr. |
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Sandnes Merinoull eða annað garn sem passar við prjónfestuna, t.d. Scout eða Bébé Soft Wash sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4 mm prjóna
Peysan er prjónuð neðan frá, fram og til baka, með laskúrtöku. Ermar eru prjónaðar í hring. Hnappalisti er prjónaður jafnóðum og er peysunni hneppt vinstra megin. Mynstur er aðeins prjónað að framan.
Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og í hring með mynstri á hvorri hlið. Stuttar umferðir eru prjónaðar að aftan til þess að auka pláss fyrir litla bossa.
MÓEY & MOSI ungbarnasett
Regular price 1.990 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%MÓEY barnapeysa er prjónuð fram og tilbaka og byrjað er að prjóna neðan frá. Ermarnar eru prjónaðar í hring, síðan sameinaðar við bol og berustykki prjónað fram og til baka með laskaúrtöku. Einfalt gatamynstur er prjónað á öllum bolnum, bæði að framan og aftan og á berustykkinu.
MOSI buxur eru prjónaðar ofan frá með reim í mitti sem sett er inn í fald. Gerðar eru stuttar umferðir til þess að gera aukið pláss fyrir litla bossa. Auðvelt er að setja skemmtilegan svip á buxurnar með því að prjóna faldinn og reimina með öðrum lit. Einnig er auðvelt að sleppa reiminni og setja teygju í staðinn.
Stærðir | Yfirvídd peysu | Yfirvídd buxna |
0-3 mánaða | 49 cm | 42 cm |
3-6 mánaða | 52 cm | 45 cm |
6-12 mánaða | 55 cm | 49 cm |
1-2 ára | 60 cm | 52 cm |
Stærðir | Garn í peysu* | Garn í buxur* |
0-3 mánaða | 100 gr | 100 gr / 25 gr |
3-6 mánaða | 150 gr | 100 gr / 25 gr |
6-12 mánaða | 200 gr | 150 gr / 25 gr |
1-2 ára | 200 gr | 200 gr / 25 gr |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Scout frá Kelbourne Woolens.
Scout (sýnt á mynd) eða Semilla – fæst í vefverslun MeMe Knitting
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón
YRKI ungbarnagalli
Regular price 1.390 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%YRKI ungbarnagalli er hluti af YRKI línunni frá MeMe Knitting. Gallinn er prjónaður ofan frá og hnappalisti prjónaður jafnóðum. Stroffið á ermum og skálmum er haft tvöfalt svo gallinn endist sem lengst.
Stærð |
Ummál |
Garn* |
0-3 mánaða |
50 cm |
200 g |
3-6 mánaða |
52 cm |
200 g |
6-9 mánaða |
54 cm |
250 g |
9-12 mánaða |
58 cm |
300 g |
12-18 mánaða |
62 cm |
300 g |
18-24 mánaða |
64 cm |
350 g |
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Sandnes Merinoull en hægt er að nota allt garn sem hentar prjónfestunni, t.d. Scout eða Semilla sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4,0 mm prjóna.