Mynsturprjón: 18. maí 2022
Regular price 9.900 kr Save Liquid error (snippets/product-template line 119): Computation results in '-Infinity'%Námskeið þetta er ætlað fyrir þá sem hafa grunn í prjóni. Gerðar verða nokkrar prufur í allskyns mynsturprjóni
Lengd námskeiðs: 3 klst (kl. 18-21)
Fjöldi á námskeiði: 6-8 manns
Leiðbeinendur
Selma Markúsdóttir og Tinna Sigurðardóttir
Lærdómsmarkmið
- Hvernig lesa á mynsturgraf og skriflegar mynstur leiðbeiningar
- Helstu tákn í gataprjóni
- Helstu tákn í kaðalprjóni
- Að prjóna mynstur með tveimur eða fleiri litum
- Notkun kaðaprjóna
Koma skal með prjóna og tvær dokkur af garni í sitthvorum litnum fyrir u.þ.b. 4-5 mm prjóna og kaðalprjón.
Hvar?
Námskeiðið verður haldið í verslun MeMe Knitting við Dalbraut 3 í Reykjavík.
Nemendur fá 15% afslátt af vörum í verslun á námskeiðinu. Hægt er að versla á staðnum.
Leiðbeinendur áskila sér þeim rétti að hætta við námskeið og endurgreiða ef lágmarksfjölda er ekki náð. Ganga þarf frá greiðslu til þess að tryggja pláss á námskeiði. Tilkynna þarf forföll minnst einni viku fyrir námskeið til þess að fá fulla endurgreiðslu, annars verður 50% endurgreiðsla
Umsögn þátttakenda á námskeiðum okkar