

Stærðir: 6-12 mánaða, 1-2 ára, 2-4 ára // 4-6 ára, 6-8 ára, 8-10 ára
Garn: Ég notaði garnið Drops Baby Merino, en hægt er að notast við allt garn sem passar prjónastærðinni.
Hversu mikið garn þarf: 250 g, 300 g, 300 g // 350 g, 400 g, 400 g
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
Það sem þarf:
3,5 mm hringprjónn
3,5 mm sokkaprjónar
Prjónamerki
Nál fyrir frágang
Prjónfesta: 24 lykkjur = 10 cm sléttprjón á prjónastærð 3,5
Peysan er prjónuð í hring neðan frá og upp. Hægt er að prjóna peysuna með eða án kraga.